Ánægður með Borgarahreyfinguna!

Ég er mjög sáttur að sjá hvað borgarahreyfingin er að fá mikið fylgi. Ég hvet alla sem ætla að skila auðu að kjósa borgarahreyfinguna, með því getur fólk sýnt mun betur hversu illa það er orðið við þetta gjörspillta pakk sem er á þingi.
mbl.is Samfylking stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún hefur smá rétt fyrir sér.

Ég verð að segja að hún hafi smá rétt fyrir sér þarna hún Þorgerður, en ég endurtek bara smá.

Stjórnarflokkarnir verða að fara svara fyrir margt sem hún er að segja, meðal annars slæmt ástand krónunar og fleira.

Það má ekki gleyma stórum kosningarmálum, það er ekki nema 10 dagar til kosninga. En við verðum samt að vita hvort við séum að fara kjósa glæpamenn eða ekki á þing! Þess vegna skil ég ekki þennan hægagang hjá Sjálfstæðisflokknum að upplýsa þetta mál að fullu í stað þess að láta fólk alltaf bara fá smá að upplýsingum og svo þurfa blaðamenn að finna meira og þeir svara fyrir.


mbl.is Aldrei heyrt alvarlegri ásakanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak!

Ég er ánægður með þetta fólk. Að nýta það sem stendur autt og er ekki í notkun. En ég verð hinsvegar að segja að það á ekki að berjast gegn því að eigandinn geri það sem hann vill við húsið. Það er nefnilega til svolítið sem kallast eignarréttur og fólk má nýta þann rétt eins og það vill.

Ef ég á bíl og ákveð að sprauta hann bleikann þá er það mitt mál, það er ekki annara að segja þér til hvað sé ljótt eða fallegt.


mbl.is Götuvirki hústökufólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki eitthvað sem á að gera eftir kosningar?

Ég er kannski einn um það, en mig minnir að hérna í gamla daga þá heyrði maður Samfylkingu og Vinstri græna sí vælandi yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi alltaf verið að keyra mál í gegn á lokamínútum þingsins. En hvar er þetta væl núna? Núna þegar þeir fá gagnrýni þá er það málþóf? Ég er kannski bara svona vitlaus að ég fatta ekki þessa þversögn.
mbl.is Stjórnarskráin áfram á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt að kasta steini úr glerbúri!

Ég veit ekki betur en krónan hafi hrunið meira en 16% í tíð Sjálfstæðisflokksins. Ég ætla þó ekki að verja það aðgerðarleysi sem ný stjórn ber ábyrgð á.

Mér langar að vita hversu langt þarf krónan að fara til að Steingrímur telji það nauðsynlegt að grípa inn í? Þegar botninum er náð hversu mörg heimili og fyrirtæki verða orðin gjaldþrota? Auðvitað eigum við að fara varlega en það er þörf á breytingum og það strax.


mbl.is Krónan veikst með nýrri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt að vita ekkert eftirá!

Gaman að heyra að sjálfur Iðnaðarráðherra viti ekkert að aðkomu FL Group að Orkuveitu Reykjavíkur. Hann kemur bara að fjöllum þegar spurt er um tengsl FL og REI. Það væri gaman að vita ef Össur hafi þegið einhverja peninga frá FL fyrir prófkjörsbaráttu sína.
mbl.is Orkuútrásin og Fl Group
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fékkst fyrir þessa peninga?

Mér finnst alveg magnað í þessari umræðu að fréttamenn séu ekki að spyrja alla flokkanna fyrir hvað þeir voru að fá þessa styrki ? Gæti verið að það sé verið að kaupa sér greiða? Eða er þetta gert svo að aumingja stjórnmálamennirnir þurfi ekki að svelta á þingmannalaunum? Hefði ekki verið gáfurlegra að gefa þessa peninga til góðgerðamála.


mbl.is Skulduðu hálfan milljarð í lok 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri bara að segja sannleikan?

Guðlaugur, eitt ráð. Hvernig væri bara að byrja að segja sannleikann í stað þess að flækja þig í vefi lyganna? Þú reddaðir þessum peningum! En mér langar samt að vita eitt. Afhverju eru tvö fyrirtæki að gefa Sjálfstæðisflokknum 60 Milljónir? Það væri gaman að fá svör við því.
mbl.is Var í beinu sambandi við bankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsa fyrst, tala svo!

Það er alveg ótrúlegt hvað menn komast upp um mikla fáfræði. Það sem er versta í þessu er að Guðlaugur sá sér góða leið útúr þeim vandæðum sem hann er búinn að koma sér í með að segja að ríkisendurskoðun eigi að skoða þetta mál. Væri ekki betra að hafa samband við ríkisendurskoðun fyrst áður en það er tala svona. Þetta er nefnilega vandamálið með þingmenn okkar í dag, þeir tala fyrst og hugsa svo.
mbl.is Ríkisendurskoðun hefur ekki heimild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur árangur!

Það er mikið að hlustað sé á kröfur stúdenta. En mér finnst samt eitt skrítið, afhverju var okkar ágæti menntamálaráðherra að segja þegar þessi krafa kom fyrst fram að hún væri of dýr í framkvæmd? Hvað var það sem lét breyta huga hennar?

Gæti verið að hún sé að kaupa atkvæði stúdenta? Maður spyr sig.


mbl.is 600 milljónir til sumarnáms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Bjartmar Oddur Þ Alexandersson

Höfundur

Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband